Fréttir Grunnskóli
kollumuli-14
kollumuli-14
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

Kollumúli

02.10.2009

Síðastliðinn miðvikudag fórum við í 10unda bekk í þriggja daga ferð í Kollumúla í Lónsöræfum. Árni Rúnar, Berglind, Kiddi litli og Jón Braga voru fararstjórar ferðarinnar. Lagt var af stað frá skólanum snemma á miðvikudagsmorgun, farið var á tveimur bílum sem voru ekki í vandræðum með að koma okkur yfir Skyndidalsána. Á Kjarrdalsheiðinni var snjór yfir öllu, en þegar við gengum niður Illakamb þá var enginn snjór heldur sól og blíða. Við vorum komin um hádegi í Múlaskála þar sem við sváfum. Þegar komið var í Múlaskála var farið að gera sig til fyrir alvöru göngu, þar sem Jón Bragason leiddi hópinn í göngu um Víðibrekkursker og var þetta 8,6 km ganga. Við vorum komin í skálann aftur um kvöldmatarleyti þar sem við fenguð gourme hamborgara þar sem allir hjálpuðust að við að elda ;). Eftir kvöldmat var gengið frá og haft það kósý. Fimmtudagsmorguninn vöknuðum við eldhress klukkan 8 að morgni, og borðuðum morgunmat og svo var haldið í gönguferð um Tröllakróka og gaman að segja frá því að Kiddi át fótalausa könguló og hálfan grasmaðk fyrir aðeins fótanudd. Eftir svipaða langa göngu og fyrri daginn fengum við ljúfengt lambalæri að hætti Kidda. Kvöldið var svipað nema minni svefn og meiri skemmtun. Veðrið lék við okkur alla ferðina nema um seinni nóttina þá fengum við ekta íslenskt veður þannig að skálinn fór á stjá og ásamt kolagrillunum. Föstudagsmorguninn gengu allir frá sínu dóti, svo var bara gengið aftur heim á leið, upp Illakamb þar sem okkar biðu svo rúturnar þegar við komum upp. Við vorum komin á Höfn um hádegið eftir frábær og velheppnaða ferð. :D

Á fimmtudaginn næsta kl. 20:30 ætla 10. bekkingar að hafa kaffihúsakvöld í skólanum fyrir foreldra og aðra sem vilja sjá myndir úr ferðinni.  Einnig ætla þeir að sýna myndir frá nýnemahátíðinni og af öðru sem þeir hafa verið í gera vetur.  Aðgangseyririnn fer í ferðasjóð 10. bekkinga

Karen Björg, Kolbrún Birna, Anna Mekkín og Lukka.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica