Fréttir Grunnskóli
hvild
hvild
Gott að setjast niður og hvíla sig eftir langan dag
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

Danskir grunnskólanemar í heimsókn

21.09.2009

 

Um síðustu helgi voru 36 danskir nemendur úr 8. bekk í  Vestervangskolen, ásamt 4 kennurum, í heimsókn hjá 8. bekkingum í Grunnskóla Hornafjarðar. 

Hópurinn kom um miðjan dag á föstudag og skoðaði Jöklasafnið áður en þau komu sér fyrir í skólastofum í Heppuskóla, þar sem þau sváfu.  Þá drifu þau sig í sund í boði sveitarfélagsins ásamt hornfirsku 8. bekkingunum. Þar gafst færi á að spjalla aðeins áður en hóparnir, sá danski og sá íslenski borðuðu saman pizzur á Hótel Höfn um kvöldið.  Foreldrar barna úr 8. bekk hjálpuðu til og allt fór ákaflega vel fram. Hóparnir blönduðust vel og það var mikið spjallað yfir matnum. Því var ákveðið að framlengja aðeins samveruna um kvöldið og halda á gervigrasið þar sem fram fór óformlegur landsleikur í fótbolta á milli þjóðanna. Hljóp íslendingunum kapp í kinn og safnaðist að nokkuð af unglingum bæði eldri og yngri sem einnig tóku þátt.  Hér varð ekki um neitt 14 – 2 að ræða, heldur varð leikurinn frekar jafn, enda fór hann fram í mesta bróðerni.  Dönsku nemendurnir þurftu að fara inn fyrir kl. 9 enda áttu þau ólokið ýmsum verkefnum áður en farið var í háttinn og meiningin að leggja snemma af stað í skoðunarferð morguninn eftir. 

Danirnir fóru síðan á laugardeginum, undir styrkri fararstjórn Guðmundar Inga, í siglingu um Jökulsárlón og á Þórbergssetur þar sem þau borðuðu íslenska kjötsúpu í hádeginu.

Hópurinn kom til baka til Hafnar seinnipart dags og skellti sér aftur í sund þar sem gestgjafarnir höfðu óþolinmóðir beðið þeirra.  Um kvöldið var síðan grillað undir styrkri stjórn foreldra 8. bekkinga, í Pakkhúsinu. Síðan fór allur hópurinn í ratleik sem nokkrir nemendur 8. G höfðu útbúið en að því loknu var dansað við dynjandi undirleik plötusnúðanna Heimis Konráðs og Alexanders Alvins.  Var ekki alveg laust við að eldri unglingana á Höfn langaði að fá að vera með í dansinum. Maturinn var í boði sveitafélagsins en foreldrar sáu um eldamennskuna og hluti foreldra keypti einnig gos handa hópnum og lagði til poppvél, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Heimsóknin öll heppnaðist með eindæmum vel og er það mest fyrir að þakka góðri skipulagningu sem og dugnaði og eljusemi foreldra og nemenda sem komu að málunum með okkur. Hornfirsku unglingarnir voru okkur til sóma í hvívetna og varla er hægt að hugsa sér betri gestgjafa en þennan hóp.

Það er skemmst frá því að segja að Danirnir voru óskaplega ánægðir með dvölina hér og þær góðu móttökur sem þeir fengu.

Það var ekki laust við að kveðjustundin yrði dálítið erfið sumum og margir skiptust á MSN netföngum og áttu erfitt með að slíta sig frá nýju vinunum.  

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica