Nýnemadagur
Til að byrja með fengu nemendur lítil við brögð. Þeim var bent á að það væri bara busað í framhaldsskólum og að núna væri 7. bekkur kominn í Heppuskóla og því ekki viðeigandi að vera með neina busun.
Þegar skóli byrjaði í ágúst var ein fyrsta spurningin sem kennarar og skólastjóri á unglingastigi fengu, „hvenær verður busað?“ Til að byrja með fengu nemendur lítil við brögð. Þeim var bent á að það væri bara busað í framhaldsskólum og að núna væri 7. bekkur kominn í Heppuskóla og því ekki viðeigandi að vera með neina busun. Þegar nemendaráð var kosið þá tók það málið í sínar hendur og stakk upp á því að haldin yrði Nýnemahátíð, þar sem nýjum nemendum í skólanum yrði fagnað en þeir um leið látnir vita að þeir ættu að bera tilhlýðanlega virðingu fyrir sér eldri nemendum. Þessi tillaga fékk hljómgrunn starfsmanna og nemenda og skipulögðu nemendur í 9. og 10. bekk nýnemadag sem haldinn var miðvikudaginn 9. sept.
Dagurinn hófst á því að nemendum í 7. og 8. bekk var bent á að þeir ættu að sitja á gólfinu í anddyrinu en ekki í sófunum. Síðan tóku allir nemendur þátt í Norræna skólahlaupinu og það var ekki fyrr en eftir hádegi sem eiginleg hátíðarhöld hófust. Þá var 7. og 8. bekk safnað saman á efri hæð skólans. 7. bekkingar voru klæddir í Nettópoka en 8. bekkingar í svarta ruslapoka og fengu nýnemarnir gel eða hárnet í hárið og voru málaðir í framan. Síðan skriðu nýnemarnir niður og yfir í íþróttasal á meðan 9. og 10. bekkur söng hástöfum yfir þeim. Í íþróttasalnum var síðan farið í ýma leiki. Ákveðið var að fara sérstaklega mjúkum höndum um 7. bekkingana og þeir þurftu ekki að vera með frekar en þeir vildu en langflestir þeirra kusu að vera með og skemmtu sér vel eins og allir hinir.
Um kvöldið var síðan matur og diskótek í Sindrabæ fyrir 8. – 10. bekkinga. 7. bekkingar eru enn of ungir til að fá að taka þátt í slíkum kvöldskemmtunum en geta í staðinn hlakkað til þeirra næsta vetur. Í Sindrabæ var boðið upp á kjúkling og franskar og síðan var diskótek í boði Heimis Konráðs sem þeytti skífurnar af miklum krafti og hélt upp látlausu stuði til kl. 11.00 þegar skemmtuninni lauk.
Unglingarnir skipulögðu þessa hátíð með miklum sóma og framkvæmdin gekk afar vel. Það voru stoltir starfsmenn sem fylgdust með nýnemahátíðinni og glæsilegum unglingum á diskótekinu sem voru í alla staði til fyrirmyndar.



