Nýsköpunarkeppni grunnskóla
Tveir nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar komust áfram í vinnusmiðjur í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna nú í haust, þær Auður Lóa Gunnarsdóttir og Selma Björt Stefánsdóttir. Kannski segir það til um hvar mesta gróskan er í nýsköpun hér í sýslunni að báður nemendurnir eru af Mýrunum. Auður Lóa ætlar að hanna nýjan mjólkurtank en verkefnið hjá Selmu Björt heitir hesturinn minn og er hönnun á tölvuleik.
Í ár bárust 2700 umsóknir frá 60 skólum í Nýsköpunarkeppnina en 45 nemendur komast í vinnusmiðjurnar. Þær Auður Lóa og Selma Björt fara í vinnusmiðju í Foldaskóla í Reykjavík dagana 5. og 6. september þar sem þær munu útfæra verkefnum sín nánar ásamt því að skemmta sér með öðrum uppfinninganönnum en Slysavarnarfélagið Landsbjörg býður þáttakendum í skemmtiferð.



