Fréttir Grunnskóli
lego
lego
Legóhópurinn byrjaður að undirbúa keppnina First Lego Leagu
Mynd 6 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Val á unglingastigi farið af stað

01.09.2009

Í dag fór valið af stað á unglingastiginu.  Á fyrsta tímabili sem stendur fram í lok október er boðið upp á gifs, boltavali, badminton, förðun og tísku, matreiðslu, útivist, kvikmyndagerð og legó.    Skipulagið í kringum valið er margskonar og eru tveir hópar í sumu valinu.  Sumir mæta bara á þriðjudögum á meðan aðrir þurfa að vinna mikið í stuttan tíma t.d. kvikmyndahópurinn sem þarf að ljúka sinni vinnu fyrir næstu mánaðarmót.  Útivistarhóparnir vinna sína vinnu á misjöfnum tíma og legóhópurinn þarf að vinna mikið fyrir legókeppnina sem nú er þremur vikum fyrr en vanalega.  Þeir sem þurfa að vinna á öðrum tímum en þriðjudögum fá heim með sér skipulag sem einnig verður sent í tölvupósti til foreldra. 

Nokkur ruglingur hefur orðið hjá fólki á því hvað sé val og hvað séu smiðjur.  Smiðjurnar eru fastar frá 1. bekk og upp í 10. bekk.  1. - 4. bekkur fá 4 tíma á viku í smiðju en 5. - 10. bekkur 6 tíma.  Í 1. - 6. bekk fara nemendur í heimilisfræði, smíðar, textíl og myndmennt að undanskildum 1. bekk sem fer ekki í smíði.  Í 7. - 8. bekk bætast við leiklist og tölvur í smiðjum og þá kemur val inn í smiðjurnar því nemendur komast ekki í nema sex smiðjur á vetri.  Valið eykst síðan eftir því sem nemendur eldast.  Smiðjurnar eru skiplagðar þannig að nemendur fara í sömu smiðjuna í u.þ.b. 8 vikur en skipta þá um og fara í næstu. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica