Val á unglingastigi farið af stað
Í dag fór valið af stað á unglingastiginu. Á fyrsta tímabili sem stendur fram í lok október er boðið upp á gifs, boltavali, badminton, förðun og tísku, matreiðslu, útivist, kvikmyndagerð og legó. Skipulagið í kringum valið er margskonar og eru tveir hópar í sumu valinu. Sumir mæta bara á þriðjudögum á meðan aðrir þurfa að vinna mikið í stuttan tíma t.d. kvikmyndahópurinn sem þarf að ljúka sinni vinnu fyrir næstu mánaðarmót. Útivistarhóparnir vinna sína vinnu á misjöfnum tíma og legóhópurinn þarf að vinna mikið fyrir legókeppnina sem nú er þremur vikum fyrr en vanalega. Þeir sem þurfa að vinna á öðrum tímum en þriðjudögum fá heim með sér skipulag sem einnig verður sent í tölvupósti til foreldra.
Nokkur ruglingur hefur orðið hjá fólki á því hvað sé val og hvað séu smiðjur. Smiðjurnar eru fastar frá 1. bekk og upp í 10. bekk. 1. - 4. bekkur fá 4 tíma á viku í smiðju en 5. - 10. bekkur 6 tíma. Í 1. - 6. bekk fara nemendur í heimilisfræði, smíðar, textíl og myndmennt að undanskildum 1. bekk sem fer ekki í smíði. Í 7. - 8. bekk bætast við leiklist og tölvur í smiðjum og þá kemur val inn í smiðjurnar því nemendur komast ekki í nema sex smiðjur á vetri. Valið eykst síðan eftir því sem nemendur eldast. Smiðjurnar eru skiplagðar þannig að nemendur fara í sömu smiðjuna í u.þ.b. 8 vikur en skipta þá um og fara í næstu.



