Fréttir Grunnskóli
010vefur
010vefur
Nú styttist í að nemendur hefji skólagöngu aftur eftir 12 vikna sumarfrí

Skólasetning 24. ágúst

14.08.2009

 

Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar mánudaginn 24. ágúst  

1.     – 3. bekkur  kl. 16:00 – í Hafnarskóla

4.   – 6. bekkur kl. 18:00 – í Hafnarskóla

7.  – 10. bekkur kl. 20:00 - í Heppuskóla

                   Á skólasetningu verður farið yfir helstu atriði  í skólastarfinu; stundaskrár afhentar,   námsáætlanir kynntar, skólareglur, og fleira sem varðar skólahaldið. 

                   Forráðamenn eru vinsamlegast beðnir um að  mæta með börnum sínum og láti yngri börnin þá ganga fyrir.

Enginn skólaakstur er í tengslum við skólasetningu.

                                                                                              

 

Viðtalsdagur í  Grunnskóla Hornafjarðar þriðjudaginn 25. ágúst frá kl. 9:00 – 15.00

                   Kennarar skólans verða til viðtals frá kl. 9:00 til 15:00.  Þeir forráðamenn og nemendur sem hafa áhuga á að ræða við umsjónarkennara eða aðra kennara  um einstaklingsmál eða annað varðandi skólastarfið eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri í upphafi skólaársins.  

 

Opið hús í Hafnarskóla 25. ágúst frá 16:00 -  18:00 – allir velkomnir

Frá 16:00-18:00 er opið hús í Hafnarskóla þar sem við hvetjum alla Hornfirðinga til að koma og skoða þær breytingar sem gerðar hafa verið á skólanum. 

 

Kennsla hefst  miðvikudaginn 26. ágúst samkvæmt stundaskrá.

                                                                                    Skólastjórar

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica