Skólastarf hafið
Síðustu daga hefur starfsfólk grunnskólans setið á námskeiðum til að undirbúa starf vetrarins. Fyrra námskeiðið var sameiginlegt með leikskólunum en það fjallaði um lestur og lesfærni og voru leiðbeinendur á því Helga Sigurmundsdóttir og Steinunn Torfadóttir. Síðara námskeiðið var um uppeldi til ábyrgðar en þar var Guðlaug Erla Gunnarsdóttir leiðbeinandi.
Nú er framkvæmdum að verða lokið við Hafnarskóla og verður því mikið að gera í flutningum í skólanum í næstu viku því stefnt er að því að allta verði komið á sinn stað við skólasetningu 24. ágúst.



