Fréttir Grunnskóli
Picture 004
Picture 004
Atli að rífa gamla og lúna sólbekki
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

Miklar framkvæmdir í Hafnarskóla

02.06.2009

 

Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Hafnarskóla.  Verið er að breyta tveimur elstu hlutum skólans þannig að 1. – 3. bekkur skólans rúmist hér út á Höfn.  Í elsta hluta skólans sem tekinn var í notkun 1939 er verið að innrétta matsal sem taka mun tæplega 100 manns í sæti.  Þar munu nemendur úr öllum Grunnskólanum matast en þrísetja þarf salinn. Í miðhluta skólans sem tekinn var í notkun 1959  er verið að brjóta niður einangrun í kjallara vegna fúkkalyktar og breyta í vinnuaðstöðu og kaffistofu fyrir starfsfólk en bókasafn og sérkennsla færist á efri hæð ásamt því að þar verða tvær kennslustofur. 

Í Heppuskóla þarf minna að breyta.  Þar verður tölvustofan þó lögð niður líkt og í Hafnarskóla en i stað þess að vera með tölvustofur verður komið upp tveimur bekkjarsettum af fartölvum í skólanum.  Við það fjölgar um tvær almennar kennslustofur í Grunnskólanum. 

Skólalóðirnar verða teknar algerlega í gegn.   Við Hafnarskóla verður komið upp kastala og öðrum leiktækjum fyrir yngri börnin, hellulagt og þökulagt og gengið frá eftir allt raskið sem átt hefur sér stað þar.  Lóðir skólanna verða tengdar betur saman og svæðið við Heppuskóla hækkað upp þannig að hægt verði að ganga þurrum fótum á milli skólanna á veturna.  Einnig verða þar sett upp tæki sem henta unglingastiginu en nýtast jafnframt almenningi í tengslum við íþróttavöllinn.

Framkvæmdir ganga vel hjá iðnaðarmönnum og stefnt er að því að þeim verði lokið í byrjun ágúst og skóli verði settur 24. ágúst.   

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica