Fréttir Grunnskóli
104vefur
10. B. stórglæsileg kveðja nú Grunnskólann
Mynd 7 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Hátíðleg skólaslit

02.06.2009

 

Skólaslit Grunnskóla Hornafjarðar fóru fram við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Höfn 29. maí. Margt var um manninn því flesta þyrstir jú í að sjá yfirlit yfir námsárangurinn og uppgjör eftir skólaárið. Nemendur þriðja bekkjar hófu dagskrána með því að spila á blokkflautur en þeir eru síðustu nemendurnir sem klára full þrjú ár í Nesjaskóla. Magnús J Magnússon flutti skólaslitaræðuna en það var útskriftarhópurinn sem var mest í sviðsljósinu.  

Að þessu sinni luku 40 nemendur námi í 10. bekk. Sæþór Pétur Kjartansson hlaut viðurkenningu fyrir besta námsárangurinn en auk þess að standa sig afar vel í 10. bekk lauk hann einnig 21 einingu í FAS.  Hannes Halldórsson hlaut viðurkenningu fyrir mestar framfarir og Óskar Þór Ingvarsson fyrir störf að félagsmálum. Alexandra Geirsdóttir, Alma Bjarnadóttir og Róslín Alma Valdemarsdóttir hluti sérstaka viðurkenningu fyrir öflugt starf með leikhópnum Lopa þau þrjú ár sem þær stunduðu nám við skólann. 

Nemendur úr 10. bekk sáu einnig um að skemmta gestum og stigu fjórir söngvarar á svið úr árganginum.  Það voru Þórdís Imsland, Árdís Birgisdóttir og Yrsa Líf Nökkvadóttir sem sungu lög  við undirleik Elvars Braga Kristjónssonar og Bjarni Garðar Jónssonn söng og spilaði á gítar ásamt Hafþóri Imsland. Rúsínan í pylsuendanum á hverjum skólaslitum er að sjálfsögðu ræða útskriftarnema en að þessu sinni var það Egill Eiríksson sem flutti skörulega ræðu fyrir hönd 10. bekkinga.

Að skólaslitum loknum fóru 10. bekkingar út að borða með kennurum og foreldrum og áttu saman góða stund í Pakkhúsinu.  Þar héldu 10. bekkingar áfram að skemmta gestum með myndasýningu, söng og fleiru.

Nú standa yfir miklar breytingar á húsnæði Grunnskólans vegna flutnings 1. - 3. bekkjar út á Höfn.  Við flutninginn verða töluverðar breytingar á starfsmannahaldi skólans.  Til að byrja með þá verður skólastjórnendum fækkað úr þremur í tvo og lætur Guðmundur Ingi Sigbjörnsson af störfum sem skólastjóri eftir 34 ára starf.  Hann mun þó kenna dönsku áfram við skólann og er það mikill fengur fyrir skólann því hann er með bestu dönskukennurum á landinu. Einnig verður stöðum deildastjóra breytt og önnur þeirra lögð niður.  Því láta þau Eygló Illugadóttir og Magnús J Magnússon deildarstjórar bæði af störfum en hyggja á framhaldsnám og koma vonandi bæði aftur til okkar tvíefld. 

Næstu daga geta nemendur og forráðamenn nálgast óskilamuni í anddyri Heppuskóla.  

Þar geta þeir sem ekki komust á skólaslitin einnig nálgast ferilmöppurnar sína og einkunnir.

Búið er að loka Hafnarskóla þar sem nú fara fram breytingar á gamla skólanum.

Starfsfólk og stjórnendur skólans senda nemendum sínum og forráðamönnum þakkir fyrir samstarfið í vetur og óska þeim góðra daga í sumar. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica