Fréttir Grunnskóli
halldor og roslin vef
halldor og roslin vef
Halldór og Róslín á æfingu

LEIKFERÐ LOPA Á LEIKLISTARHÁTIÐ ÞJÓÐLEIKS

08.05.2009

 

Fimmtudaginn 23. apríl kl. 12.00 lagði 14 manna hópur leikara í Leikhópnum Lopa af stað frá Hornafirði. Stefnan var tekin á Egilsstaði þar sem hópurinn átti að sýna 2 tvö leikrit á Leiklistarhátið Þjóðleiks dagana 24. – 26. apríl. Farið var á bíl frá Guðbrandi og var Ólafur M. Hauksson bílstjóri. Magnús leikstjóri hafði  farið daginn áður með leikmyndina í öðrum bíl.

Leikhópurinn hóf vinnu við þetta verkefni  5. janúar sl. Þar sem um var að ræða tvö leikrit þá varð æfingartímabilið lengra og stundum flóknara. En þetta gekk allt saman vel og 11. mars voru leikritin frumsýnd. Gekk allt vel með það. Hlé var gert til 15. Apríl en þá hófust æfingar aftur og sýningarnar sýndar 21. apríl og þá teknar upp. Og nú voru menn lagðir af stað á leiklistarhátíðina miklu.

Þegar hópurinn kom á Egilsstaði, var farið í Valaskjálf þar sem Magnús var búinn að koma upp leikmyndinni og Ingólfur ljósameistari búinn að hengja kastarana okkar í 8 metra hæð. Leikarar komu búningum og leikmunum fyrir. Síðan var farið á Eiðar þar sem við áttum að gista. Leikarar komu sér fyrir. Þá var farið aftur til baka, borðað, æft, og æft. Um kvöldið var afslöppun og hvíld!

Að loknum afar góðum morgunverði á föstudeginum var farið í Valaskjálf og sýningunum rennt með öllu. Það gekk afar vel og við bara spennt. Kl. 12.00 mætti allur leikhópurinn í Valaskjálf þar sem undirbúningur vegna setningarinnar fór fram. Þá voru þar komnir um 200 leikarar á aldrinum 13 – 20 ára. Hátíðargangan var skipulögð og henni raðað upp og kl. 13.00 var lagt af stað.  Það fjölgaði í göngunni við Safnahúsið á Egilsstöðum þegar forsetinn herra Ólafur Ragnar ásamt menntamálaráðherra, þjóðleikhússtjóra, leikstjórum, höfundum  og mörgum öðrum bættust í gönguna. Gengið var að Sláturhúsinu þar sem hátíðin var sett.  Mikill fjöldi og mjög gaman.

Vorum aftur mætt upp í Valaskjálf kl. 14.00 til að undirbúa sýningarnar. Þar sem við vorum með tvær sýningar var þetta ferli okkar lengra en annarra. Ísvélina átti að sýna kl. 15.00 og Dúkkulísu kl. 16.00.  Það var mikil spenna í hópnum þegar nálgaðist sýningu. Vitað var að á fremsta bekk sátu forsetinn, Þjóðleikhússtjóri, framkvæmdastjóri fræðsludeildar Þjóðleikhússins, Bjarni Jónsson höfundur Ísvélarinnar og Þórdís Elva höfundur Dúkkulísu ásamt miklum fjölda leikara annarra leikhópa á hátíðinni. En sýningarnar gengu báðar mjög vel og allir voru sáttir þegar þeim lauk. Gestir komu á bak við, heilsuðu leikurum og þökkuðu fyrir sig. Allir ánægðir. Reikna má með að á sýningarna báðar hafi komið um 50 – 70 á hvora.

Eftir að hafa gengið frá fóru allir að sjá sýningar annarra leikhópa í Sláturhúsinu, hitta vini og kunningja og hafa gaman saman. Eftir að hafa borða veglegan skammt af pizzum á pizzuhlaðborðinu var ekið á Eiða. Þá voru flestir aðrir leikhópar komnir þangað og mikið fjör og skemmtan fram undir miðnætti. Ró!!

Að loknum góðum morgunverði á laugardagsmorgninum var farið á Egilsstaði. Farið var í sund og á sýningar.  Hópurinn mætti síðan upp í Valaskjálf kl. 13.00 en við áttum að sýna fyrri sýninguna kl. 14.00 og þá síðari kl. 15.00 Gengu báðar sýningar vel. Á fyrri sýninguna komu milli 80 – 90 áhorfendur og á þá síðari 130 áhorfendur.  Ætla má að 330 áhorfendur hafi séð sýningar Lopa á þessari hátíð.

Eftir að sýningum lauk var leikmynd og ljósabúnaður tekinn niður og allt sett í bíl ásamt búningum og leikmunum. Síðan var gengið frá sýningaraðstöðunni og við kvöddum Valaskjálf með söknuði. Eftir þetta fóru menn á sýningar.

Um kvöldið var hamborgaraveisla á Eiðum og mikil hátíðarkvöldvaka. Þar komu allir leikhóparnir 13 með atriði. Frábær skemmtum og gekk vel. Og þar sem þetta var kosningarkvöld þá var stemming á staðnum. Kom á óvart hvað margir unglingar höfðu áhuga á kosningatölum og úrslitum. En ró komst á alla aðila á góðum tíma.

Eftir morgunverð á sunnudeginum var farið að ganga frá á Eiðum, herbergi þrifin og allt sett á sinn stað í bílana. Farið á Egilstaði, horft á 2 – 3 sýningar. Að lokinni kveðjuathöfn var lagt af stað heim. Komum í Mánagarð um 17.30, gengum frá leikmynd og leikmunum og síðan fóru þreyttir en ánægðir leikarar heim til sýn, ánægðir með ferðina og árangurinn.

Allt þetta ferli er búið að vera æðislegt. Krakkarnir hafa í alla staði unnið vel og verið sjálfum sér  og okkur til sóma. Ég vil þakka leikurum, forráðamönnum þeirra og öllum sem hafa stutt við bakið á okkur kærlega fyrir. Án þess hefði þetta ekki gengið upp.

Kveðja

Leikhópurinn Lopi

Magnús J. Magnússon

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica