Börn hjálpa börnum
Fjórðu bekkingar tóku þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum á dögunum og söfnuðu samtals 80.835 krónum. Það er ABC barnahjálp sem stendur fyrir þessari söfnun og hefur myndast sú hefð að fjórðu bekkingar safna fyrir hönd barna hér um slóðir. Þessi upphæð verður notuð til að kaupa skólamáltíðir fyrir börn víðsvegar um heiminn sem búa við bág kjör og eru í ABC skólum. Upphæðin dugar til að kaupa 1.617 skólamáltíðir fyrir börn í ABC skólum en þess má geta að ef við ætluðum að kaupa skólamáltíðir hér fyrir þessa upphæð þá fengjum við einungis 261 máltíð.
Eftir páska fá nemendur í hendur viðurkenningarskjal frá ABC barnahjálp fyrir vel unnin störf.
Á heimasíðu ABC barnahjálpar má sjá myndir sem voru teknar þegar maturinn sem var keyptu fyrir söfnunarpeningana frá Íslandi kom í hús í Úganda.



