Fréttir Grunnskóli
P3265337vefur
P3265337vefur
nemendur i fyrstabekk
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Af árshátíð

30.03.2009

Þetta er í annað sinn sem er haldin sameiginlega sýning Grunnskólans frá 1. bekk og upp í 10. bekk. Það eru oddatölu bekkir sem sýna atriði út Kardimommubænum, Dýrunum í Hálsaskógi og Karíus og Baktus. Þessi verk eru eftir norska rithöfundinn Torbjörn Egner. Verk hans hafa notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina og er óhætt að segja að boðskapur hans um að batnandi mönnum er best að lifa eigi alltaf við. Því þótt að við höfum leiðst út í afbrot (Kasper Jesper og Jónatan) eða að borða önnur dýr (Mikki refur) Eða að bursta ekki tennurnar (Jens) þá getum við alltaf bætt hegðun okkar til hins betra ef við fáum hjálp og skilning til þess frá samfélaginu.

Það er mikið verk að koma upp einni árshátíð þar sem um 300 nemendur taka þátt. Því þótt oddatölubekkir leiki á sviðinu, þá eru það sléttar tölur sem vinna myndir sem prýða salinn, leikskrá og selja í sjoppunni. Þannig tekst að vinna með alla nemendur og allir upplifa að þeir hafi tekið þátt. Síðan snýst dæmið við að ári.

Umsjónarkennarar nemenda leikstýra þáttum sem að þeim snúa, tónmenntakennarar vinna að tónlistinni og nemendur vinna leikmyndina. Grunnskólinn þakkar þeim gott starf svo og öllum sem koma að þessari vinnu.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica