Fréttir Grunnskóli

Heilræði til foreldra fermingarbarna frá SAFT

30.03.2009

 

Til foreldra fermingarbarna,

Tölvur hafa verið vinsælar fermingargjafir síðustu ár og því vilja Heimili og skóli og SAFT vekja athygli foreldra á að þó að barnið eignist sína eigin tölvu minnkar ekki ábyrgð foreldra hvað jákvæða, ábyrga og uppbyggilega notkun barna þeirra á nýmiðlum varðar.

Í því samhengi sendum við foreldrum eftirfarandi heilræði sem er ætlað að styðja þá í því að kynnast netinu með börnum sínum og leiðbeina þeim um örugga netnotkun. Við viljum líka nota tækifærið og benda á heimasíðu SAFT http://www.saft.is/ en þar má finna ýmsan fróðleik og gagnlegar leiðbeininga sem við kemur jákvæðri og öruggri netnotkun.

 

10 SAFT netheilræði

1. Uppgötvið netið saman

 Kynntu barninu þínu netið. Það getur verið til góðs fyrir ykkur að kynnast netinu sameiginlega. Á vafri ykkar um netið skuluð þið reyna að finna vefsíður sem eru bæði spennandi og skemmtileg og við hæfi barna. Jákvæð fyrsta reynsla leiðir frekar til jákvæðs og meðvitaðs viðhorfs til frekari könnunarferða á netinu. Aukinheldur skapast grundvöllur til að deila því sem vel gengur eða fer miður í frekara vafri.

2. Gerðu samkomulag við barnið um netnotkun á heimilinu

Reyndu að komast að samkomulagi við barnið um almennar reglur sem gilda fyrir netnotkun á heimilinu. Það hefur reynst foreldrum ágætlega að eiga samstarf um tölvunotkun barna sinna við foreldra innan vinahópsins eða bekkjarins, rétt eins þeir sammælast um útivistatíma. Hér að neðan eru nokkrar hugmyndir að grunnreglum:

             Hvernig fara á með persónulegar upplýsingar (nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang)

             Hvernig koma á fram við aðra á netinu (spjall, tölvupóstur, skilaboð)

             Hverskonar vefsíður og athafnir eru í lagi eða ekki í lagi í ykkar fjölskyldu

 

Það er mikilvægt að þú gerir þér ljóst að netið getur verið jákvæður “samkomustaður” fyrir börn til að kynnast öðrum börnum. Hins vegar er ekki ráðlegt að þau hitti einhvern sem þau kynnast á netinu nema í fylgd með foreldri eða öðrum sem þau treysta. Barnið ætti að minnsta kosti alltaf að fá samþykki foreldris áður en það heldur til slíks fundar.

3. Hvettu barnið til að vera gætið þegar það veitir persónulegar upplýsingar

Mikilvægt er að þú gerir þér grein fyrir því að mörg vefsíður krefjast persónulegra upplýsinga áður en hægt er að skoða efni þeirra. Þannig er afar áríðandi að barnið viti hvenær er í lagi að veita persónulegar upplýsingar og þá hvaða. Einföld regla er að barnið gefi aldrei upp persónulegar upplýsingar án leyfis foreldris.

4. Ræddu um þá áhættu sem fylgir því að hitta netvin

5.  Kenndu barninu þínu að skoða efni á netinu með gagnrýnum hætti

Flest börn nota netið til að bæta og auka þekkingu sína í tengslum við nám og tómstundir. Netnotendur ættu hins vegar að gera sér ljóst að ekki eru allar upplýsingar á netinu réttar. Sýndu barninu þínu hvernig sannreyna má upplýsingar með því að bera saman mismunandi vefsíður með sama efni á netinu.

6. Haltu vöku þinni – það er vel hugsanlegt  að barnið rekist á efni á netinu einungis ætlað fullorðnum

Börn geta rekist á efni ætlað fullorðnum fyrir tilviljun á netinu. Ef barnið leitar vísvitandi að slíkum vefsíðum skaltu muna að börn eru alltaf forvitin um það sem er bannað. Reyndu að nota slík tilvik frekar sem tækifæri til að ræða um slíkt og setja reglur um leit á netinu. Best er að vera raunsær í mati á því hvernig barnið notar netið.

7. Kenndu barninu þínu að skoða efni á netinu með gagnrýnum hætti

Það er afar mikilvægt að við tökum öll ábyrgð á því efni sem birtist á netinu og tilkynnum yfirvöldum um efni sem við teljum vera ólöglegt eða skaðlegt. Með þessu vinnum við að því að draga úr ólöglegri starfsemi á netinu eins og t.d. barnaklámi eða tilraunum til að lokka börn á spjallrásum, í tölvupósti eða með smáskilaboðum (SMS) til funda við ókunna, eða til ólöglegra athafna.

8. Hvetjið til góðra netsiða

Netsiðir eru óformlegir mannasiðir á netinu. Rétt eins og í hinu daglega lífi eru óformlegar siðareglur um hvernig beri að haga sér á netinu. Þar á meðal eru almenn kurteisi og notkun góðs og rétts máls. Einnig skal varast að hrópa (með HÁSTÖFUM) á aðra eða áreita. Hvorki fullorðnir né börn eiga heldur að lesa tölvupóst annarra eða nota efni sem ekki má afrita.

9. Kynntu þér netnotkun barnsins þíns

Til að þú getir leiðbeint barni þínu um netnotkun er mikilvægt að þú vitir hvernig barnið notar netið og hverju það hefur gaman að. Láttu barnið sýna þér hvaða vefsíður það skoðar gjarnan og hvað það gerir þar. Öflun tæknilegrar þekkingar gerir þér einnig auðveldara að taka réttar ákvarðanir um netnotkun barnsins þíns.

10. Mundu að jákvæðir þættir netsins eru mun fleiri en hinir neikvæðu

Netið er fyrirtaks uppspretta þekkingar og afþreyingar fyrir börn. Hvettu barnið til samviskusemi og til að nýta sér Netið til fullnustu, sjálfu sér til hagsbóta.

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica