Fréttir Grunnskóli
undirb 018
undirb 018
8. bekkur að gera Hálsaskóg
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar

24.03.2009

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar verður fimmtudaginn 26. mars í Sindrabæ.  Tvær sýningar verða fyrir nemendur og foreldra, sú fyrri kl. 17:30 og sú síðari kl. 19:00.  Nemendum og foreldrum í 1. - 5. bekk er beint á fyrri sýninguna en eldri nemendum og foreldrum þeirra á seinni sýninguna.  Þema sýningarinnar er Thorbjörn Egner og leikverk hans. 

Það fyrirkomulag er haft á árshátíðum að oddatölubekkir sjá um skemmtiatriði en hinir bekkirnir um skreytingar, sviðsmynd, sölu og annað.  Allir nemendur koma því að árhátíðinni á einn eða annan hátt þó þeir leiki ekki á sviði nema annaðhvert ár.  Við hvetjum því alla foreldra til að koma á árshátíðina.

Þessa dagana er því mikið líf og fjör í skólanum.  Út um allan skóla eru nemendur annaðhvort að æfa leikrit eða undirbúa leikmynd og skreytingar.  Á fimmtudag verður allt tilbúið og mikill spenningur að sjá hvernig til tekst. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica