Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar
Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar verður fimmtudaginn 26. mars í Sindrabæ. Tvær sýningar verða fyrir nemendur og foreldra, sú fyrri kl. 17:30 og sú síðari kl. 19:00. Nemendum og foreldrum í 1. - 5. bekk er beint á fyrri sýninguna en eldri nemendum og foreldrum þeirra á seinni sýninguna. Þema sýningarinnar er Thorbjörn Egner og leikverk hans.
Það fyrirkomulag er haft á árshátíðum að oddatölubekkir sjá um skemmtiatriði en hinir bekkirnir um skreytingar, sviðsmynd, sölu og annað. Allir nemendur koma því að árhátíðinni á einn eða annan hátt þó þeir leiki ekki á sviði nema annaðhvert ár. Við hvetjum því alla foreldra til að koma á árshátíðina.
Þessa dagana er því mikið líf og fjör í skólanum. Út um allan skóla eru nemendur annaðhvort að æfa leikrit eða undirbúa leikmynd og skreytingar. Á fimmtudag verður allt tilbúið og mikill spenningur að sjá hvernig til tekst.



