Foreldrakönnun
Könnun var lögð fyrir foreldra á viðtalsdegi í febrúar. Markmiðið var að kanna viðhorf foreldra til ýmissa þátta er varða skólann, s.s. sameiningu, upplýsingamiðlun, foreldraviðtöl, upphaf og lok skólaárs, sérfræðiþjónustu, flutning á skólastigunum og uppeldisstefnuna “uppeldi til ábyrgðar”. Niðurstöður úr könnuninni notum við til að bæta skólastarfið.
Niðurstöður foreldrakönnunar
74% foreldra telja að töluverður og mikill ávinningur hafi átt sér stað við sameiningu Nesja-, Hafnar- og Heppuskóla. Þarna hefðum við reyndar viljað sjá meiri ánægju og munum við leggja okkur enn meira fram við að bæta skólastarfið og efla skólaandann. Mjög mikil ánægja er á meðal foreldra með fréttabréf, heimasíðu og handbók skólans og einnig eru yfir 90% foreldra ánægðir með að hafa foreldraviðtölin í sama húsi.
26% foreldra fá ekki tölvupóst frá umsjónarkennurum þar sem almennt er rætt um skólastarfið, en mikil ánægja er á meðal þeirra sem fá slíkan póst frá umsjónarkennurum. Þetta styður okkur í að fá enn fleiri umsjónarkennara til að senda reglulega tölvupóst til foreldra með upplýsingum um skólastarfið. Að öðru leyti eru foreldrar almennt ánægðir með þær upplýsingar sem þeir fá um skólastarfið.
Spurt var um skólabyrjun í síðustu vikunni í ágúst og var engin / lítil ánægja hjá 53% foreldra. Einnig var spurt út í skólalok í byrjun júní og var engin / lítil ánægja hjá 64% foreldra. Þessi niðurstaða sýnir okkur að foreldrar vilja almennt ekki lengja skólann. Nú er umræða innan skólans að prófa að taka upp vetrarfrí eins og er í flestum skólum landsins en þessar niðurstöður sýna okkur að það má ekki vera á kostnað þess að skólastarfið lengist yfir veturinn.
Spurt var um sérfræðiþjónustu skólans, t.d. sálfræðing, talmeinafræðing, lestrargreiningar og skólafélagsráðgjafa og voru þeir beðnir um að svara sem hafa þurft að notfæra sér þá þjónustu. 74% foreldra sem svöruðu spurningunni lýstu yfir ánægju sinni. Við hefðum viljað sjá meiri ánægju í þessum þætti og erum þegar byrjuð að fara í gegnum ferla er varða þjónustu sérfræðinga hjá okkur. Almennt var mikil ánægja með viðmót hjá starfsfólki skólans en það eru einungis 65% foreldra ánægðir með að flytja yngsta skólastigið út á Höfn og 55% foreldra ánægðir með að flytja nemendur í 7. bekk yfir í Heppuskóla. Þessar niðurstöður minna okkur á að vanda okkur eins og við getum í haust og hafa náið samráð við foreldra.
Mikil ánægja var meðal foreldra með að starfað sé eftir uppeldisstefnunni “Uppeldi til ábyrgðar” og um helmingur sem svöruðu fannst þeir sjá merki þess í skólastarfinu. Það er mun betri svörun en við bjuggumst við þar sem talað er um að það megi búast við því að það taki 3-5 ár að fara að sjá merki skólastefnunnar í skólastarfinu.



