Upplestrarkeppnin
Stóru upplestrarkeppninni er nú lokið. Sigurvegari varð Auður Gautadóttir frá Djúpavogi, Heiðdís Anna Marteinsdóttir lenti í öðru sæti en í því þriðja varða Ragnar Magnús Þorsteinsson bæði úr Grunnskóla Hornafjarðar.
Upplestrarkeppnin er nú haldin í 9. sinn milli Djúpavogs og Hornafjarðar. En upplestrarkeppnin er liður í þjálfun nemenda í 7. bekk í upplestri. Alls tóku 12 nemendur þátt 10 frá Grunnskóla Hornafjarðar en 2 frá Grunnskólanum á Djúpavogi. Kynnir keppninnar var sigurvegarinn frá í fyrra.
Það er alltaf hátíðleg stund að taka þátt í upplestrarkeppninni og hefur það í för með sér margþætt nám fyrir þá sem taka þátt. En það eykur lesskilning nemenda, þroskar framkoma og skerpir á framsögn.


