Kontrabassar og furðuhljóðfæri
Hann er Hornfirðingum að góðu kunnur og hefur haldið hér á Hornfirði nokkra tónleika undanfarin ár. Í dag var hann með sögu strokhljóðfæra og sýndi nemendum Grunnskólans það hljóðfæri sem hann taldi vera fyrst allra hljóðfæra í mannkynssögunni. Einnig spilaði hann á hreindýrshorn ofl. framandi hljoðfæri. Mjög fróðlegir tónleikar og skemmtilegur flutningur á hljóðfærin.



