Skák í grunnskólanum
Um helgina var boðið upp á skákkennslu á vegum Skákskóla Íslands og var það Davíð R. Ólafsson sem kom og hafði umsjón með námskeiðinu. Á föstudaginn fór Davíð í alla bekki grunnskólans og talaði við nemendur um skák og hvatti þá til að mæta í kennsluna á laugardag. Á laugardag var skipt í tvo hópa, yngri og eldri nemendur. Yngri nemendur í 1. – 5. bekk mættu kl. 10:00 og mættu 46 nemendur. Eldri nemendur í 6. – 10. bekk mættu svo eftir hádegi kl. 13 og yfir 20 nemendur komu. Öllum þátttakendum bauðst svo að mæta á skákmót á sunnudeginum og mættu þá yfir 30 nemendur.
Þeir sem unnu fengu skákbók í verðlaun og einnig voru nokkrir þátttakendur dregnir út og fengu þeir skákbók að gjöf.
Davíð var mjög ánægður með hversu margir komu og hvað þau voru áhugasöm og virk.



