Fréttir Grunnskóli
skak 004 a vef
skak 004 a vef
Mynd 3 af 5
1 2 3 4 5

Skák í grunnskólanum

09.03.2009

Um helgina var boðið upp á skákkennslu á vegum Skákskóla Íslands og var það Davíð R. Ólafsson sem kom og hafði umsjón með námskeiðinu.  Á föstudaginn fór Davíð í alla bekki grunnskólans og talaði við nemendur um skák og hvatti þá til að mæta í kennsluna á laugardag.  Á laugardag var skipt í tvo hópa, yngri og eldri nemendur.  Yngri nemendur í 1. – 5. bekk mættu kl. 10:00 og mættu 46 nemendur.  Eldri nemendur í 6. – 10. bekk mættu svo eftir hádegi kl. 13 og yfir 20 nemendur komu.  Öllum þátttakendum bauðst svo að mæta á skákmót á sunnudeginum og mættu þá yfir 30 nemendur. 

Þeir sem unnu fengu skákbók í verðlaun og einnig voru nokkrir þátttakendur dregnir út og fengu þeir skákbók að gjöf.

Davíð var mjög ánægður með hversu margir komu og hvað þau voru áhugasöm og virk.   

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica