Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk
Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Hafnarkirkju miðvikudaginn 11. mars kl. 16:00 og er hún opin öllum. Við athöfnina munu 11 nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið úr Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskóla Djúpavorgs, lesa sögur og ljóð. Dómnefnd mun velja þrjá bestu upplesarana og afhenda verðlaun. Flutt verða tónlistaratriði á vegum Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu og veitingar verða í boði Mjólkursamsölunnar og skólaskrifstofu Hornafjarðar. Sparisjóðirnir gefa síðan vegleg verðlaun.
Þetta er í 9. skiptið sem Stóra upplestrarkeppnin er haldin á Hornafirði en að keppninni standa: Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, í samvinnu við skólaskrifstofur, skóla og kennara um allt land.



