Skákkennsla um helgina fyrir nemendur Grunnskólans
Davíð R. Ólafsson skákkennari heimsótti alla bekki grunnskólans í dag og kynnti þessa frábæru íþrótt skák fyrir nemendum. Og hann gerði meira en það, hann bauð öllum nemendum sem hefðu áhuga á ókeypis skáknámskeið um helgina. Námskeiðið verður í Heppuskóla og er öllum nemendum velkomið að koma, bæði til að horfa á og kynna sér skák eða til að fara á skáknámskeiðið hjá honum.
Nemendur eru beðnir um að koma á eftirfarandi tímum
1.– 5. bekkur kl. 10:00-12:00 á laugardag
6. – 10. bekkur kl. 13:00- 15:00 á laugardag



