Öskudagur
Öskudagurinn rann upp, með tilheyrandi hlaupum á heimilum Hornfirðinga og annarra landsmanna. Greiða, mála, klæða snyrta ofl. ofl. ofl. smáverk sem þarf að inna af hendi áður en lagt er af stað í skólann. Búningar í algleymingi. Grunnskóli Hornafjarðar tók á móti skrautlegu fólki í morgun. Við ætlum að láta myndirnar tala sýnu máli en um 400 myndir voru teknar. Ekki er mögulegt að setja allt á netið en Skjávarpið mun láta myndir rúlla í gegn hjá sér.
Mikið var um dýrðir og skemmtun. Það sem var þó skemmtilegt var að fá að mæta í skólann með fylgihluti sem fylgja búningunum. Áður en skóladegi lauk var kötturinn sleginn úr tunnunni og hæfileikakeppni og marsering skólunum. Nánar verður greint frá því síðar.



