Viðtalsdagur 19. febrúar - skipulagsdagur 20. febrúar
Á viðtalsdegi mæta nemendur í viðtöl með foreldrum sínum.
Þá fara nemendur og kennari yfir stöðu mála og markmið eru sett fyrir næstu önn. Nú þegar hafa nokkrir foreldrar verið boðaðir í viðtöl þar sem mikið annríki er oft hjá umsjónarkennurum á viðtalsdegi.
Fyrir foreldraviðtölin eru allir nemendur og foreldrar þeirra beðnir um að svara svokölluðu leiðsagnarmati í Mentor. Leiðsagnarmatið er hugsað til að gera foreldraviðtöl markvissari og sem hvatning fyrir nemendur og foreldra til að setjast niður fyrir viðtalið með umsjónarkennaranum og velta náminu fyrir sér og því hvað ætti að ræða í viðtalinu.
Á viðtalsdegi biðjum við alla foreldra um að taka þátt í viðhorfakönnun þar sem spurt er út ánægju með ýmsa þætti er snúa að skólastarfinu.
Föstudaginn 20. febrúar er skipulagsdagur í skólanum og því frí hjá nemendum.
Þennan dag ætla starfsmenn skólan að bregða sér af bæ og skoða skóla á Suðurlandi og kynnast því sem þar er gert. Auk þess að skoða hina ýmsu þætti skólastarfsins verður sjónum sérstaklega beint að námsmat þar sem starfsfólk skólans er í sérstöku þróunarverkefni í vetur er snýr að námsmati. Þeir skólar sem heimsóttir verða eru: Grunnskólinn í Hveragerði, Ljósuborgarskóli, Sunnulækjarskóli og Barnaskólinn Stokkseyri og Eyrabakka. Auk þess fara allir starfsmenn í heimsók í Hvolsskóla sem m.a. hlaut íslensku menntaverðlaunin á síðasta ári.


