Fréttir Grunnskóli
Nes 3. H 10
Nes 3. H 10
Guðjón kom með leynigest, kanínuna Finn.
Mynd 8 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Nýtt leikár hafið !!

11.02.2009

 

Að þessu sinni voru leikrit aðalsmerki hátíðarinnar en krakkarnir fluttu nokkra stutta leikþætti með tveimur leikurum hvert auk eitt lengra leikrit þar sem Björgvin Ingi lék skólastjóra sem leggur greindarpróf fyrir starfsmenn sína á kennarafundi. Stelpurnar sungu lagið Ríðum heim til Hóla með breyttum texta en þann texta samdi Salóme Morávek þær höfðu einnig æft hreyfingar með. Strákarnir tóku lagið Rabbabara Rúna í „loft“ útgáfu og voru alveg frábærir.      Svo má ekki gleyma búningunum en hópurinn er mjög hugmyndaríkur hvað varðar þá og sjá alveg um þann hluta sjálf. Í lokin kom svo Guðjón með leynigest en það var kanínan Finnur. Allir fengu að klappa Finni og að vonum vakti þetta mikla lukku.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica