Fréttir úr Nesjaskóla
Það má kannski þakka stillurnar á þorranum ungu mönnunum okkar sem hoppuðu um, í upphafi þorra, í annarri buxnaskálminni. Þetta voru ungir sveinar úr 2. bekk sem tóku þetta hlutverk að sér en kennari þeirra Jóna Þóra ( Nóna) sá um að uppfræða okkur í skólanum um gamla siði sem tengjast þorranum en það var hluti af föstudags uppákomum okkar. Við fengum einnig leynigesti í heimsókn en Ásthildur kom með sjö hvolpa sem allir fengu að halda á og klappa. Þetta vakti að vonum mikla lukku.



