Á annarri buxnaskálminni!
Nemendur í Grunnskólanum fögnuðu komu þorra í morgun með því að hlaupa í kringum skólann í annarri buxnaskálminni. Auðvitað voru það eingöngu drengirnir sem tóku þátt í þessu en konurnar sátu inni og fylgdust með út um gluggann, eins og húsfreyja var siður á árum áður. Fleira var gert til að fagna bóndadeginum, 7. bekkur var með skemmtun á sal þar sem gert var grín að nemendum og ekki síst kennurum. Þeir enduðu svo dagskránna á því að skora á kennara að koma með næstu skemmtun. Síðan fórum nemendur og spiluðu Hornafjarðarmanna og gott ef það leynist ekki heimsmeistari í þessum hópi.



