Heimsókn Nýsköpunarmiðstöðvar
Í morgun komu fulltrúar frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands í heimsókn í Grunnskólann ásamt Ara Þorsteinssyni og Hjalta Vignissyni. Fulltrúar Nýsköpunarmiðstöðvar eru staddir hér til að kynna starf Nýsköpunarsmiðstöðvar á Hornafirði og munu verða með kynningu á henni í Nýheimum í dag. Heimsóknin í Grunnskólann tengdist nýsköpunarstarfinu þar og þeim árangri sem legóhóparnir hafa verið að ná. Klakarnir sýndu þeim legóverkefnið sem þeir sigruðu keppnina með og leist þeim afar vel á það.
Grunnskólinn ætlar að halda áfram að þróa nýsköpunarvinnu í skólanum og tilkoma Nýsköpunarmiðstöðvar á Hornafirði kemur örugglega til með að styrkja þá vinnu.



