Fréttir Grunnskóli
tonlistfyriralla2vefur
tonlistfyriralla2vefur
Nemendur Grunnskólans fagna tónlistarflutningi í Hafnarkirkju, syngja og hreyfa sig með.

Breytingar á skipulagi Grunnskóla Hornafjarðar

18.12.2008

Eins og flestum er kunnugt ákvað bæjarstjórn Hornafjarðar að flytja 1. til 3. bekk Grunnskóla Hornafjarðar út á Höfn n.k. haust. Unnið hefur verið að þessum breytingum í vetur og mun 1. til 6. bekkur verða í Hafnarskóla en 7. til 10. bekkur í Heppuskóla. Einnig samþykkti bæjarstjórn að fækka skólastjórum við skólann úr þremur í tvo og deildastjórum úr tveimur í einn. Í kjölfar þess ákvað Guðmundur Ingi Sigbjörnsson að draga sig í hlé frá skólastjórn en starfa þó áfram að starfa við Grunnskóla Hornafjarðar. Guðmundur hefur starfað sem skólastjóri Heppuskóla undanfarin 36 ár og frá 1996 hefur hann haldið utan um alla unglinga í sýslunni. Það er margs að minnast á svo löngum starfsferli og væri gaman að fá sögur við og við á vefinn okkar sem ekki mega gleymast.
Ekki verður gert upp á milli þeirra deildarstjóra sem hafa verið dyggir starfsmenn skólans og verður staða deildarstjóra í sérkennslu auglýst þegar líður á veturinn.
Skólaárið 2009 til 2010 verða þau Þorvaldur Viktorsson og Þórgunnur Torfadóttir skólastjórar við Grunnskóla Hornafjarðar. Þorvaldur mun hafa aðsetur í Hafnarskóla en Þórgunnur í Heppuskóla. Saman mynda þau skólastjórn ásamt deildarstjóra sérkennslu og mun skólastjórnin starfa þvert á skólastigin.

Strax með vorinu hefjast breytingar á húsnæði skólanna. Mestar breytingar munu eiga sér stað í og við Hafnarskóla en þangað verða lausu kennslustofurnar í Nesjaskóla m.a. færðar auk þess sem eldri hluti skólans verður alveg tekinn í gegn. Í sumar verður skólalóðinni í Heppuskóla og Hafnarskóla breytt með það í huga að skapa samfellu milli húsanna og að sjálfsögðu til að greiða götu nemenda. Lóðinni verður skipt í svæði fyrir yngri og eldri börn og síðan verður útiaðstaða nemenda á unglingastigi bætt verulega og gerð aðlaðandi.

Þegar svona viðamiklar breytingar verða á skólamálum reynir á starfsfólk skólans sem og nemendur og foreldra. Starfsfólk er einhuga um að þessar breytingar séu skref í rétta átt og skiptir samstaðan þess höfuðmáli svo vel megi til takast. Alltaf má þó búast við að einhverjir hnökrar komi upp á leiðinni en allar líkur eru á því að jákvætt starfsfólk bregðist hratt og örugglega við og greiði úr þeim hnökrum. Þessar breytingar hafa einnig verið kynntar foreldrum á opnum fundi í Nýheimum og tóku þeir vel í þær hugmyndir sem fram komu. Þar komu einnig fram gagnlegar ábendingar frá foreldrum en það er afar mikilvægt að foreldrasamfélagið taki virkan þátt í breytingarferlinu með starfsfólki Grunnskólans. Gott samstarf heimila og skóla er lykilatriði að farsælum námsferli nemenda.

kristinge@hornafjordur.is

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica