Fréttir Grunnskóli
15._des_002_a_vef
15._des_002_a_vef
Vinningshafar í umferðargetraun í 4. og 5. bekk þeir Dagur Snær Guðmundsson og Jólel Ingason
Mynd 1 af 2
1 2

Jólagetraun og jólasöngur

15.12.2008

Á hverju ári efnir Umferðarstofa til jólagetraunar hjá nemendum í 1. - 5. bekk. Á samveru á sal í dag voru vinningshafar dregnir úr réttum svörum í 4. og 5. bekk. Í fjóraða bekk var það Jóel Ingason sem var dreginn úr og hlaut í verðlaun bókina Eyja sólfuglsins eftir Sigrúnu Eldjárn. Í 5. bekk var það Dagur Snær Guðmundsson sem var dreginn út og hlaut í verðlaun bókina Steindýrin eftir Gunnar Theodór Eggertsson.

Þess má geta að þeir Arnar Freyr Valgeirsson og Jóhann Klemens Björnsson stigu á stokk á sal í dag og sungu lagið Ég sá mömmu kyssa jólasvein fyrir okkur hin með miklum ágætum. Almennt hafa nemendur tekið virkan þátt í jólasöngnum á aðventunni og hann sett skemmtilegan lit á aðventuna á öllum skólastigum.

Á litlu jólunum verður dregið um vinningshafa í 1. - 3. bekk.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica