Trúarbragðasýning og jólasamvera
Á mánudaginn 8. desember var trúarbragðarsýning hjá 7. M. Krakkarnir buðu foreldrum sínum og gerðu glærusýningu, bæklinga um trúarbrögðin hindú, búddha, íslam, gyðingadóm og kristni sem eru 5 helstu trúarbrögð heims. Einnig settu þau upp muni sem tengjast trúarbrögðunum og voru í viðeigandi búningum. Í framhaldi af því var jólasamvera á vegum tengla bekkjarins og kom hver fjölskylda með eitthvað gotterí aðallega piparkökur sem var sett allt á eitt borð og allir máttu fá sér. Síðan var farið í Actionari.
Birkir Þór Hauksson.


