Fréttir Grunnskóli
4b08_troll_019_a_vef
4b08_troll_019_a_vef
Tröllaverkefni í 4. bekk - þar er m.a. unnið með málið á fjölbreyttan hátt
Mynd 1 af 3
1 2 3

Lesblinda - hvað er hægt að gera?

08.12.2008

Á Menntavísindasviði Háskóla Íslands er sífellt unnið að rannsóknum á námi og kennslu. Nú hefur starfsfólk þar kynnt sér nýjar aðferðir við inngrip við lestrarvandamálum og á morgunvaktinni á Rás 1, 8. desember var viðtal við Steinunni Torfadóttur þar sem hún sagði frá því í hverju þessi inngrip felast.

Fyrst og fremst talaði Steinunn um snemmtæka íhlutun varðandi lestrarvanda. Snemmtæk íhlutun miðar að því grípa það snemma inn í málþróun barnsins að lestrarvandinn komi helst aldrei upp og trufli barnið a.m.k. lítið í námi. Lestrarvanda skiptir Steinunn í tvennt, annarsvegar lesblindu og hinsvegar lesskilningsvanda.

Lesblinda ? tengist erfiðleikum í hljóðkerfisvitundinni og til að vera með fyrirbyggjandi vinnu gegn lesblindu er mikilvægt að vinna með tengsl hljóða og orða, hljóða og stafa. Þetta getum við gert í allskonar orðaleikjum, s.s. hvaða hljóð er fyrst í orðinu mús og svo framvegis.

Lesskilningsvandi tengist meira erfiðleikum í málþroska. Lesskilningur byggir að miklu leyti á góðum málskilningi og það að lesa fyrir börn og tala við þau örvar mjög málskilning og dregur úr líkum á lesskilningsvanda.

Mikilvægt er að foreldrar og aðrir uppalendur geri sér grein fyrir því að öll vinna með málið er mikilvæg alvega frá fæðingu og eftir því sem fyrr er gripið inn í vandamál þeim mun minni eru líkurnar á vandamálum.

Næsta haust stefna Grunnskólinn og leikskólarnir hér á Höfn að því að fá Steinunni á sameiginlegt námskeið þar sem viðfangsefnið er snemmtæk íhlutun á lestrarvanda. Hér er hægt að nálgast viðtalið við Steinunni í heild sinni.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica