Fréttir Grunnskóli
Lopi_blekking_029vefur
Lopi_blekking_029vefur
Björn, Sævar og Dóra einbeitt
Mynd 1 af 3
1 2 3

Frábær ,,Blekking

05.12.2008

Nú hefur leikhópurinn Lopi lokið sýningum á leikritinu Blekking eftir Magnús J. Magnússon. Sýningum lauk með tveimur skólasýningum þar sem öllum nemendum í 4.- 10. bekk var boðið á leikritið. Nemendur voru flestir afar ánægðir með sýninguna og sem dæmi má nefna að í 4.- 7. bekk misstu áhorfendur aldrei athyglina þær 70 mínútur sem sýningin stóð enda stanslaust eitthvað skemmtilegt um að vera á sviðinu.
Hér er leiklistargagnrýni frá nemanda í 5. bekk.

Við í Grunnskóla Hornafjarðar fórum á leiksýningu hjá Lopa í Mánagarði þann 23. nóvember. Það var mjög gaman og krakkarnir sem voru frá 8. bekk allveg upp í 10. bekk léku allveg ofboðslega vel. Þetta leikrit var um stelpur sem voru að hætta í unglinga vinnuni og ákváðu að halda upp á það að vera að hætta. Stelpurnar voru í 2 vinahópum. Annar vinahópurinn ákvað að reyna að fá sumarbústað hjá einum pabbanum lánaðann til þessa að geta haldið upp á þetta. Hinn vinahópurinn vildi fá að vita hvar hinar ætluðu að vera og svo ætluðu þær að hræða þær. Þær reyndu að spyrja nokkrar stelpur í hinum vinahópnum hvar þær ætluðu að vera og þær sögðu að þær ætluðu að tjalda úti í skógi. Þá fóru þær út í skóg en enginn var þar og þá hringdu þær í pabbann sem lánaði hinum bústaðinn. Þær spurðu hann hvort að hann vissi hvar hinar stelpurnar væru og hann sagði þeim að þær hafi farið upp í sumarbústaðinn sinn. Þá varð aðal stelpan í hópnum sem hét Kolla í leikritinu mjög reið. Þetta er ekki allt leikritið en þetta er allveg rosalega skemmtilegt og krakkarnig stóðu sig mjög vel. Maður verður bara að vona að á næsta ári verði það jafn gott.

Í leikhópnum Lopa eru í haust 34 nemendur úr 8. - 10. bekk og sjá þau um ljós, hljóð, sviðsmynd auk að sjálfsögðu leiksins . Leikstjóri er nú sem fyrr Magnús J Magnússon. Öll um gjörð verksins er einföld en skýr og lögð áhersla á leikarana sjálfa sem skiluðu sínu hlutverki með sóma.
Sú leiklistarvinna sem Magnús J. hefur skilað með Lopa bæði í haust en ekki síður öll þau ár sem leikhópurinn hefur starfað er ómetanleg bæði fyrir nemendur en ekki síður allt skólastarfið.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica