Fréttir Grunnskóli
Klakar_a_Hotelinu_017_a_vef
Klakar_a_Hotelinu_017_a_vef
Klakarnir með Gísla sem gaf þeim gjafabréf í pizzu
Mynd 2 af 3
1 2 3

Bæjarstjórn býður legóhópnum í pizzu á Hótelið

28.11.2008

Eins og flestir muna eftir þá sigraði legóhópurinn Klakarnir First Lego Leagu keppnina sem haldin var 8. nóvember síðastliðinn og vann sér um leið inn rétt til þátttöku á Evrópumótinu í Kaupmannahöfn í byrjun maí á næsta ári. Bæjarstjórn bauð Klökunum ásamt fylgdarmönnum í keppninni í pizzu á Hótelinu í gær í tilefni sigursins. Þar tók hópurinn vel til matar síns enda pizzur sívinsælar hjá þessum aldurshópi. Um leið og bæjarstjórinn óskaði Klökunum til hamingju með árangurinn þá hafði hann orð á því að það væri sérstaklega gaman að bjóða þeim út að borða því honum þætti pizzur líka svo góðar.

Eigendur Hótel Hafnar gerðu það heldur ekki endasleppt við Klakana því hvert og eitt þeirra, ásamt liðstjórunum Magnhildi og Eiríki fékk gjafabréf í pizzu á Hótelið.

Nú hafa Klakarnir hafið söfnun fyrir ferðinni á Evrópumótið og á Nýheimadeginum 6. desember munu þau vera með fjáöflun og kynningu á verkefninu. Um leið og Klakarnir þakka bæjarstjórn, eigendum Hótels Hafnar og öðrum sem hafa stutt þá fyrir sig þá vonast þeir eftir góðum stuðningi á Nýheimadeginum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica