Legohópurinn þakkar fyrir sig
Eins og flestum er kunnugt unnu Klakarnir, lið Grunnskóla Hornafjarðar Íslandskeppnina í First Lego League. Þar með varði liðið titil skólans frá í fyrra og tryggði sér rétt til að taka þátt í Evrópukeppninni sem haldin verður í Danmörku í maí á næsta ári. Einn af yfirmönnum keppninnar sagði að það væri skrítið að lið frá sama skóla skyldi vinna annað árið í röð en Klakarnir hefðu einfaldlega verið langbesta liðið. Einnig vann liðið bikar fyrir bestu liðsheildina. Nú vilja þau koma á framfæri þakklæti til Jóns Bakara og Nettó fyrir góðan stuðning. Keppnisandinn hefur ekkert minkað því nú er verið að undirbúa Evrópukeppnina en þau eru staðráðin í að fara og keppa.
Þjálfari Klakanna er Eiríkur Hansson grunnskólakennari sem hefur verið liðstjóri allra 7. bekkjar liðanna sem farið hafa í þessa keppni en einnig fór Magnhildur Gísladóttir umsjónarkennari bekkjarins með þeim. Í liði klakanna eru þau Agnar Jökull Imsland Arason, Darri Snær Nökkvason, Guðrún Kristín Stefánsdóttir, Heiðdís Anna Marteinsdóttir, Jóhann Klemens Björnsson, María Hjördís Karlsdóttir, Marteinn Eiríksson, Ragnar Magnús Þorsteinsson, Þorsteinn Geirsson, Una Guðjónsdóttir. Þau eru öll nemendur í 7. bekk en í skólanum hefur skapast sú venja að nemendur þess bekkjar taki þátt í keppninni.



