Raddböndin þanin í Heppuskóla
Föstudaginn 7. nóvember tóku nemendur Heppuskóla lagið eftir hádegi, þetta var aldeilis flottur og kraftmikill kór og hann Elvar Bragi kom í skólann og spilaði undir á gítar. Nokkrir nemendur voru búnir að útbúa söngbók sem sungin var spjaldanna á milli. Þetta gerði mikla lukku og það var gott að koma saman og þenja raddböndin á þennan háttinn. Á föstudaginn seinasta var spiluð félagsvist í skólanum, nemendur í 8.-10. bekk spiluðu saman á 21 borði. Úrslit voru tilkynnt í dag og það var Alex Freyr í 10.A sem var hæstur af körlunum, hæst af konunum var Sverrir Brimar í 10.B, hann spilaði sem sagt sem kona. Þeir fengu pizzu í vinning frá Hótelinu.
Við munum halda áfram að syngja og spila hér í Heppuskóla í vetur, enda er þetta hvoru tveggja eitthvað sem allir hafa bæði gott og gaman af.



