Fréttir Grunnskóli
Legóhópurinn
Legóhópurinn
Legóhópurinn

Klakarnir unnu First Lego League

08.11.2008

Klakarnir, lið Grunnskóla Hornafjarðar vann í dag Íslandskeppnina í First Lego League. Þar með varði liðið titilinn skólans frá í fyrra og tryggði sér rétt til að taka þátt í Evrópukeppninni sem haldin verður í Danmörku í maí á næsta ári. Einn af yfirmönnum keppninnar sagði að það væri skrítið að lið frá sama skóla skyldi vinna annað árið í röð en Klakarnir hefðu einfaldlega verið langbesta liðið. Í liði klakanna eru þau Agnar Jökull Imsland Arason, Darri Snær Nökkvason, Guðrún Kristín Stefánsdóttir, Heiðdís Anna Marteinsdóttir, Jóhann Klemens Björnsson, María Hjördís Karlsdóttir, Marteinn Eiríksson, Ragnar Magnús Þorsteinsson, Þorsteinn Geirsson, Una Guðjónsdóttir. Þau eru öll nemendur í 7. bekk en í skólanum hefur skapast sú venja að nemendur þess bekkjar taki þátt í keppninni. Liðstjórar Klakanna eru þau Eiríkur Hansson sem hefur verið liðstjóri allra 7. bekkjar liðanna sem farið hafa í þessa keppni og Magnhildur Gísladóttir umsjónarkennari bekkjarins.

Eins og margir muna eflaust eftir þá unnu Ísjakarnir, lið Grunnskóla Hornafjarðar, landskeppnina í fyrra og fóru til Minneapolis og kepptu á Opna ameríska legómótinu því Evrópukeppnin féll niður. Þar voru þeir landi og þjóð og ekki síst okkur Hornfirðingum til mikils sóma og nú stefnir allt í að Klakarnir muni endurtaka leikinn í Danmörku.

Við erum svo sannarlega stolt af árangri okkar fólks og óskum þeim góðs gengis með áframhaldið.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica