Fréttir Grunnskóli
Nes_okt_08_016
Nes_okt_08_016
Jóhann Morávek blæs í túbu
Mynd 4 af 5
1 2 3 4 5

Hvernig urðu hljóðfærin til ?

03.11.2008

Við fengum góðan gest í heimsókn til okkar í Nesjaskóla á föstudaginn en þá kom Jóhann Morávek skólastjóri Tónskólans með fullt af hljóðfærum í farteskinu. Hann ræddi við nemendur skólans um það hvernig hljóðfæri urðu til í upphafi og um leið sýndi hann nokkrar gerðir af hljóðfærum og leyfði okkur að heyra hvernig þau hljóma jafnframt því að hann spilaði af geisladiskum tóndæmi. 3. HG tók á móti Jóhanni með óvæntu atriði en þau fluttu lagið Smellum í góm sem er eftir Jóhann og textinn eftir Rafn Sigurbjörnsson Þessi heimsókn er liður í föstudagsuppákomum í Nesjaskóla þar sem við fáum utanaðkomandi aðila með fyrirlestur í bland við okkar hefðbundnu föstudagshátíðir t.d. höfum við fengið lögregluna í heimsókn með umferðafræðslu og Menningarmiðstöðina með kynningu á barnastarfinu sem þau eru með.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica