Læra að nýta sér bókasöfnin í leik og starfi
Nú er safnkennslan hafin í Grunnskóla Hornafjarðar en hún felst í því að kenna nemendum skólans leiðir til að nýta sér bókasöfnin í leik og starfi. Nemendum er meðal annars kennt að nota bókasafnskerfið Gegni til að finna hvar bækur og gögn eru staðsett í bókasöfnunum ásamt því að afla upplýsinga úr bókum og af neti. Farið er í heimsókn á Bókasafn. Menningarmiðstöðvar en þar eru leyst ýmis verkefni og kíkt í skjalageymslu sýslunnar. Þá fá nemendur afhentan bækling um skólabókasafnið en þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.
Hér er hægt að nálgast bæklinginn fyrir safnakennslu.



