Íþróttadagur í 8. - 10. bekk
Laugardaginn 18. október var haldinn íþróttadagur fyrir nemendur í 8. 10. bekk og foreldra þeirra. Bekkjartenglar og nokkrir nemendur skólans sáu um skipulagningu og var hún til fyrirmyndar. Sett var upp þrautabraut sem nemendur hönnuðu og áttu bæði foreldrar og nemendur að fara í gegnum hana á tíma. Keppnisskapið var sko aldeilis til staðar jafnt hjá nemendum sem og foreldrum. Besti tíminn hjá fullorðnum í brautinni var 37 sekúndur og 33 sekúndur hjá nemendum. Eftir þrautabrautina var boðið upp á kaffi, djús og heimabakað bakkelsi. En dagurinn var ekki liðinn því eftir kaffið var farið í höfðingjaleik. Ekki var keppnisskapið minna þar, því ekki vildu foreldrar tapa fyrir krökkunum sínum nú eða öfugt. Og í lokin var farið í allsherjar höfðingjaleik þar sem allir kepptu í einu. Íþróttadagur með þessu sniði verður væntanlega hluti af skólastarfi komandi ára, enda var gaman að sjá nemendur skólans og foreldra þeirra skemmta sér saman á þennan hátt.
Takk kærlega fyrir góðan dag.



