Föstudagshátíð í Nesjaskóla.
Síðast liðinn föstudag sá 2. N um föstudagshátíð skólans. Hátíðin hófst á því að krakkarnir léku Fiðlu-Hansa á flautu og síðan komu þau fram hvert á eftir öðru og sögðu brandara, gátur og sögðu bráðskemmtilega rímbrandara sem má teljast nýtt í brandara flórunni. Þau fluttu svo leikrit um Bakkabræður og las Auðunn fyrir okkur söguna á meðan Benjamín Glói, Einar Karl, Kristján Bjarki og Laufey túlkuðu persónurnar. Malín og Sara Kristín lásu einnig söguna um Ketillaugu og Skeggja í Skeggey, Jóhann las frumsamda sögu og síðan kom allur hópurinn og dansaði afar flottan línudans. Í lokin sungu krakkarnir Blátt lítið blóm eitt er,
Rímlagið og nýjan hreyfisöng sem þau hafa verið að æfa hjá Jónínu. Krakkarnir í 2. N skoruðu á 3. D sem mun sjá um næstu föstudagshátíð. Þetta var mjög skemmtilegt, allir stóðu sig afar vel, takk fyrir okkur.



