Fréttir Grunnskóli
Gongum_i_skolann_008_a_vef
Gongum_i_skolann_008_a_vef
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

Göngum í skólann

08.10.2008

85% nemenda í 4. - 10. bekk Grunnskólans gekk eða hjólaði í skólann í dag. Af eðlilegum ástæðum var erfitt fyrir nemendur í 1. - 3. bekk að taka þátt í þessu verkefni en þeir koma bara sterkari inn síðar. Gísli Skarphéðinn Jónsson skar sig þó sérstaklega úr en hann hjólaði í skólann alla leið innan frá Stapa eða u.þ.b. níu kílómetra. Frábært afrek það. Þetta er í fyrsta skiptið sem Grunnskólinn hér tekur þátt í "Göngum í skólann" verkefninu. Þetta er alþjóðlegt verkefni með yfir 40 þátttökulöndum og mörgum milljónum barna. Fyrsti dagur þess var 10. september og svo lauk því í dag 8. október. Þar sem grunnskólinn leggur áherslu á heilsueflingu í skólastarfinu þá verður þetta örugglega árviss viðburður og þó ekki hafi viðrað vel undanfarnar vikur í Hornafirði hefur þátttaka verið mjög góð.

Til að skoða niðurstöðurnar þá hjóluðu eða gengu frá 4. til 10. bekk 186 nemendur af 219. Fjarlægðir í bænum eru fyrir þá sem fara lengst eru 1,8 km. allt annað er auðvitað styttra. Þegar mörgum nemendum er keyrt í skólann myndast oft mikil umferð og mikill útblástur fyrir utan, og nú þegar tekur að skyggja á morgnana getur verið varasamt fyrir nemendur að skjóta sér á milli bílanna.

Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan hátt til og frá skóla. Íslensk börn og fullorðnir sem taka þátt í verkefninu slást þar með í för með mörgum öðrum þjóðum heims, svo sem Áströlum, Brasilíumönnum, Kýpurbúum, Bretum, Írum, Nýsjálendingu, Svisslendingum og Bandaríkjamönnum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica