Föstudagshátíð í Nesjaskóla
Síðasta föstudag var undirritaður svo ljónheppin að vera staddur í Nesjaskóla þegar föstudagshátíðin fór fram. Föstudagshátíðir eru hugsaðar með þeim hætti að bekkirnir eru með dagskrá fyrir skólann á föstudögum. Og þennan tiltekna föstudag var það 3. HG sem sá um hátíðina! Það ríkti mikil eftirvænting í litla salnum þegar hátíðin hófst. Fyrstu bekkingarnir sem ekki höfðu upplifað svona hátíð sátu einbeittir og spenntir. Annarsbekkingar ögn reyndari og vissu betur og nemendur í þriðja D sem vissi þetta allt. Á bak við var þriðji. HG, einbeittur, spenntur og með smá frumsýningarkvíði. Dagskráin hófst á kynningu sem níu nemendur fluttu, hver með smá bút úr kynningunni. Þau voru einbeitt og ákveðin og gáfu tóninn hvað varðaði hátíðina.
Ingólfur, Hafþór, Ægir, Andri, Guðjón Björgvin, Sigurður og Björn fluttu ýmsar tegundir brandara af miklu öryggi og áhorfendur voru vel með á nótunum þegar hafnarfjarðar-brandararnir voru sagðir. Þessi flutningur var skýr og góður og allt heyrðist.
Sigurborg og Ásrún fluttu frumsamin ljóð, mjög góð ljóð og flutningurinn mjög góður. Einnig las Aleksandra ljóðið blessuð sólin elskar allt með tilþrifum. Og það var ekki nóg með að hér væru ljóðahöfundar heldur fluttu þau Thelma og Björgvin frumsamdar sögur fyrir okkur. Afar vel gerðar sögur og flutningurinn góður.
Hópatriðin voru stórgóð. Tískusýningar voru tvær. Strákarnir sýndu okkur fótboltabúninga hinna ýmsu liða og var það eftirtektarvert að þegar nöfn liðanna voru nefnd var mismunandi fögnuður í salnum. En öllum liðum var fagnað. Flott og fagmannleg sýning.
Stúlkurnar voru með alveg magnaða tískusýningu og voru persónurnar alveg ótrúlegar. Og ekki vantaði göngulag og uppstillingar. Hópurinn var afar einbeittur í þessum atriðum, bæði strákarnir og stelpurnar
Þá komu tónlistaratriðin. Strákarnir fluttu Aravísur á alveg óborganlegan hátt. Þeir voru sko ekkert að klikka á einsögnum, það var alveg á hreinu. Frábært atriði. Stelpurnar sungu lag og léku með á blokkflautur. Mjög gott og vel æft atriði.
Að lokum var skorað á 2N að vera með næstu dagskrá.
Þessi hátíð var góð. Þetta er mjög góð æfing fyrir krakkana að koma fram, allir eru með. Og það er ekki síður góð æfing fyrir krakkana að vera áhorfendur og taka tillit til þeirra sem eru að skemmta. Ég skemmti mér mjög vel og ætla að reyna að sjá fleiri.
Takk kærlega fyrir mig!
Magnús J.



