Fréttir Grunnskóli
Skolasetning_008_a_vef_-
Skolasetning_008_a_vef_-
Frá skólasetningu 2008
Mynd 2 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Opinn borgarafundur með menntamálaráðherra

Kynning á nýrri menntastefnu miðvikudaginn 8. október kl. 20:00 í Nýheimum

06.10.2008

Í kjölfar Menntaþings stendur menntamálaráðuneytið fyrir kynningarfundum um nýja menntastefnu um land allt í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóla. Einnig hefur ráðuneytið kynnt nýja menntastefnu á haustþingum Félags grunnskólakennara. Framundan er mikilvægt starf við að móta áherslur í framkvæmd nýrrar menntastefnu og hvetur menntamálaráðuneytið alla til að leggja sitt af mörkum. Kynningarfundir um nýja menntastefnu eru öllum opnir og er skólafólk, kennarar, nemendur, foreldrar og annað áhugafólk um menntakerfið sérstaklega hvatt til að mæta á fundina, hlýða á erindi og taka þátt í umræðum.

Næsta miðvikudag 8. okt. kl. 20:00 verður haldinn opinn fundur í Nýheimum þar sem menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og fulltrúar frá menntamálaráðuneytinu munu kynna ný menntalög og framkvæmd þeirrar. Landsamtök foreldra, Heimili og skóli, hvetja foreldra sérstaklega til að mæta á fundinn, koma skoðunum sínum á framfæri og taka virkan þátt í umræðum. Nú er lag að láta í sér heyra og fræðast um nýju menntalögin. Starfsfólk og stjórnarfólk Heimilis og skóla sjá mörg tækifæri fyrir foreldra í skólastarfinu með nýju lögunum en þar er gert ráð fyrir aukinni þátttöku foreldra og þeim sköpuð skilyrði til sterkari tengsla við stjórn skóla og skólasamfélagið almennt.

Fundarstjóri verður Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.



Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica