Námskeið fyrir foreldra og forráðamenn 1. bekkinga
Námskeið fyrir foreldra og forráðmenn 1. bekkinga var haldið í Nesjaskóla þriðjudaginn 30. september. Námskeiðið hófst á því að Þorvaldur skólastjóri bauð gesti velkomna og rakti í örstuttu máli það sem framundan væri. Að því loknu ræddi Sigríður, annar umsjónarkennari í 1. bekk um lestrarnám, hvernig það væri byggt upp, fór í gegnum aðferðarfræðina og nefndi ýmsar gagnlegar aðferðir og leiðir til að efla lestur og lesáhuga. Brynja, hinn umsjónarkennari 1. bekkinga ræddi síðan um stærðfræðikennsluna á svipuðum nótum og Sigríður um lestrarnámið.
Ester, hjúkrunarfræðingur ræddi um mataræði og nesti. Fór í gegnum lista með mishollum neysluvörum er væru á morgunverðarborðum. Hún benti á nauðsyn morgunverðar, taldi hann afar mikilvægan. Að lokum minntist hún á svefntíma barna á grunnskólaaldri.
Birgir sálfræðingur hélt næst fyrirlestur um þroska 6 ára barna. Var þar komið inn á líkamsþroska, tilfinningaþroska, vitsmunaþroska, hreyfiþroska svo eitthvað sé nefnt. Síðan renndi hann upp aldursstigann og fjallaði um það sem framundan væri á árunum 7 - 12 ára. Vakti fyrirlestur þessi mikla athygli og varðaði þroskaleiðina fyrir marga.
Að loknum fyrirlestri Birgis var farið í mötuneytið og þar beið námskeiðsgesta léttur kvöldverður sem var vel útilátinn og vandaður í alla stað. Þar slökuðu menn á og ræddu málin.
Að loknu matarhléi hélt Þórhildur sérkennari og umsjónarkennari fyrirlestur um frávik í lestri og að hverju bæri að hyggja í sambandi við þau. Benti hún á ýmsar leiðir og kom með mörg gangleg ráð.
Að lokum hélt Magnús, deildarstjór sérkennslu smá yfirlit um stoðþjónustu Grunnskólans, úrræði og leiðir, hvert ætti að leita og hvað væri í boði.
Þá sleit Þorvaldur námskeiðinu ásamt Styrgerði sérkennara sem var með smá innlegg til foreldra.
Þetta var afar velheppnað námskeið og stefnt að því að halda það árlega!
Magnús J.



