Fréttir Grunnskóli
006_a_vef
006_a_vef
Mynd 3 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

Samstarfssamningur Grunnskólans og Framhaldsskólans

29.09.2008

Grunnskóli Hornafjarðar og Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu hafa endurnýjað samstarfssamning sem hefur það að markmiði að gera nemendum Grunnskólans fært að hefja nám á framhaldsskólastigi áður en þeir hafa lokið grunnskólanámi. Það geris með tvennu móti. Annars vegar stunda nemendur nám í valáföngum og fer kennslan fram í FAS, sem greiðir kostnað við þá kennslu. Hins vegar stunda nemendur nám í framhaldsáföngum þar sem kennslan fer fram í Grunnskólanum og sveitarfélagið stendur þá straum af kostnaði við þá kennslu. Samningur GH og FAS er í anda nýrra grunnskólalaga þar sem lögð er áhersla á sveigjanleika milli skólastiga þannig að grunnskólanemendur geti hafið framhaldsskólanám á meðan þeir eru í grunnskóla. Þess má geta að samstarf Grunnskólans og FAS hefur staðið frá því árið 2000 svo segja má að þessir skólar hafið verið vel í stakk búnir til að taka við þessu ákvæði nýrra grunnskólalaga.

Nemendur í 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar stunda nú nám í átta áföngum í FAS, bókfærslu 103, grunnteikningu 103, þýsku 103, náttúrufræði 103, stærðfræði 103, sögu 103, ensku 103 og dönsku 103. Samtals eru skráðir í þessa áfanga 76 nemendur sem þýðir að nokkrir nemendur eru í fleiri en einum áfanga því nemendur í 10. bekk eru einungis 40 talsins og nokkrir þeirra eru ekki í neinum framhaldsskólaáfanga.

Samstarfið milli FAS og Grunnskólans er mikill akkur fyrir báða aðila. Það veitir nemendum aðgang að námsframboði sem er vel samkeppnisfært við það sem er í boði annarsstaðar á landinu.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica