Göngum í skólann
Verkefnið ,,Göngum í skólann" - hófst miðvikudaginn 10. sept. s.l. Grunnskóli Hornfjarðar er þátttakandi og hvetur þá sem geta komið því við að ganga eða hjóla í skólann. Þessu verkefni lýkur svo formlega á alþjóðlega "Göngum í skólann"- deginum miðvikudaginn 8. október. Í ár verður lögð áhersla á að börn gangi eða hjóli til og frá skóla.
Markmið verkefnisins eru meðal annars:
- Hvatning til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
- Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
- Vitundarvakning um hversu "gönguvænt" umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.
- Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál.
Verkefnið er alþjóðlegt og á síðasta ári tóku milljónir barna frá fjörutíu og tveimur löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti.
Eins og kemur fram í markmiðum átaksins er m.a. verið að vinna að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál. Þetta er þarft verkefni og viljum við í Grunnskólanum taka undir markmiðin og hvetja nemendur okkar að ganga eða hjóla í skólann, en muna eftir að fara eftir umferðarreglum, og hjólamenn noti hjálma.



