Fréttir Grunnskóli
Tomas_Ingi_og_Armann_Smari
Tomas_Ingi_og_Armann_Smari
Tómas Ingi og Ármann Smári
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

Í minningu Tómasar Inga

10.09.2008

Laugardaginn 13. sept. n.k. munu forsvarsmenn Arsenalklúbbsins koma á Hornafjörð. Ástæðan fyrir komu þeirra er að þeir vilja heiðra minningu Tómasar Inga Ingvarssonar, sem var mikill Arsenal aðdáandi, með því að færa 6. bekk til eignar treyju áritaða af öllum leikmönnum Arsenal. En næsta sunnudag 14. sept. hefði Tómas Ingi orðið 11 ára.
Í tilefni þessa býður Arsenalklúbburinn á Íslandi, Grunnskólinn og Knattspyrnudeild Sindra öllum 6. bekkingum og foreldrum þeirra til athafnar á íþróttavellinum (íþróttahúsinu ef rignir) næsta laugardag 13. sept. frá kl. 13:00- 14:00. Þar verður treyjan afhent en síðan farið í ýmsa leiki með ungum sem öldnum og örugglega einhvern fótbolta.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica