Betri þjónusta við nemendur
Verið er að setja upp bókasafnsútibú í Heppuskóla en það er Menningarmiðstöðin sem vinnur að því. Bókakosturinn verður sniðinn að þörfum nemenda í 8. til 10. bekk. Mun safnið auka og bæta þjónustu við þennan hóp nemenda. En fram að þssu hefur þessi hópur sótt þjónustu á bókasafnið sem er til húsa í Nýheimum.
Að undanförnu hafa þær María Gísladóttir og Guðný Svavarsdóttir unnið að uppsetningu og frágangi safnsins.



